Verkefni
Textílúrgangur er ónýtt auðlind á Íslandi sem í dag er send í verðmætasköpun erlendis. Þessu viljum við breyta, skapa verðmætin og hringrásina hér innanlands og auka þar með atvinnusköpun og sjálfbærni varðandi textíl og textílúrgang.
Textílúrgangur er í dag, fyrst og fremst textíll úr blönduðum efnivið þar sem gerviefnum er blandað saman við náttúruleg efni. Þetta eitt gerir endurvinnslu flóknari en ella. Við þetta bætist svo gæði efnanna, með hraðtísku markaði eykst verulega framboð á lélegum efnum sem eykur flækjustig endurvinnslu enn frekar.
Með því að tæta textílinn niður, opnast margs konar tækifæri til að endurvinna efniviðinn í ný verðmæti, allt eftir því hverju er blandað við hann.
Endurnýting á textílúrgangi er annars konar verðmætasköpun en þar er ótættur textílúrgangur endurnýttur. Flöff hefur nú þegar tekið þátt í ýmsum þess konar samstarfsverkefnum, þar sem merktur starfsmannafatnaður og textíll er endurnýttur í önnur hlutverk