Elding - Hvalaskoðun
Elding - Hvalaskoðun er með margs konar textílúrgang; fána, starfsmannafatnað, hlífðargalla fyrir gesti og annað sem fyrirtækið nýtir í sinni starfsemi. Það hefur verið mjög skemmtilegt að vera í samstarfi við þau, Elding er framarlega í sjálfbærni og hringrásarstarfsemi og hafa fengið Bláfánann fyrir sína starfsemi.
Eitt af fáum efniviðum sem Elding átti eftir að koma í hringrás var textílúrgangurinn og höfðu þau samband og báðu okkur að koma í samstarf.
Fyrir okkur í Flöff var ákveðin áskorun í að endurnýta textílúrganginn frá þeim en okkar fyrsta verk var að fara í gegnum þennan margvíslega efnivið en þar má finna flísefni, björgunarvesti, kuldagalla, fána og ýmislegt fleira. Eftir rannsóknir og samtöl okkar á milli, var okkar fyrsta verk að endurnýta kuldagalla sem gestir Eldingar klæðast þegar farið er út á haf að skoða hvali.