DHL
DHL flutningsfyrirtæki er með nokkrar tegundir af starfsmannafatnaði; allt frá einlitum stuttermabolum og buxum, upp í glaðlegar flíspeysur, derhúfur og annað skemmtilegt.
Verkefni okkar í Flöff var að nýta starfsmannafatnaðinn í að búa til eitthvað nýtt. Á þessum tíma vorum við ekki komnar með textíltætarann eða annan vélakost til að endurvinna textíl. Verkefni gekk því út á að endurnýta án þess að tæta.
Eftir nokkra rannsókn okkar á efninu; hvernig það teygist og styrkleikann á því, þá varð niðurstaðan þessi…tölvutaska, “tote bag” og sæti.
Við þökkum DHL fyrir samstarfið, það verður gaman að sjá hvað framtíðin ber í skauti sér.