Flöff á vegginn

Á HönnunarMars 2026 kynnti Flöff nýja hönnun af hljóðdempandi veggpanelum sem unnir eru úr íslenskum textílúrgangi. Verkefnið er hluti af uppbyggingu fyrstu sérhæfðu textílendurvinnslu landsins og markar mikilvægt skref í átt að hringrásarhagkerfi í íslenskri hönnun og framleiðslu.

Panelarnir eru framleiddir úr notuðum textíl, meðal annars frá fyrirtækjum, stofnunum og heimilum sem annars hefði farið til spillis. Efninu er safnað saman og unnið í þæft efni sem nýtist vel til hljóðdempunar.

Hönnun panelanna byggir á einföldum formum þar sem litir og áferð efnisins fá að njóta sín. Hver plata ber með sér sögu fyrra lífs efnisins og sýnir hvernig hægt er að umbreyta úrgangi í nýja vöru. Með því að nýta staðbundið hráefni og framleiða innanlands verða til ný verðmæti úr því sem þegar er til staðar.

⁕ Hljóðvistarlausnir

Textíllistaverk

Endurvinnsla

Fyrirtækjasamstarf

Sérhannaðar lausnir

⁕ Hljóðvistarlausnir ⁕ Textíllistaverk ⁕ Endurvinnsla ⁕ Fyrirtækjasamstarf ⁕ Sérhannaðar lausnir

Hönnunarmars 2026

Sýningin Flöff á vegginn á HönnunarMars var fyrsta opinbera kynning Flöff á þessu nýja textílefni og gaf gestum tækifæri til að upplifa það í nærveru, finna áferðina og sjá hvernig textílúrgangur getur fengið nýtt líf í nýju samhengi.