N1 x Flöff
Flöff hefur í samstarfi við N1 unnið verkefni þar sem gamall starfsmannafatnaður fær nýtt líf. Verkefnið var sýnt á HönnunarMars 203 á N1-stöðinni við Hringbraut í Reykjavík.
Í verkefninu er notaður textíll úr gömlum starfsmannafatnaði N1 sem hefur lokið sínu fyrsta lífi. Fatnaðurinn, sem annars hefði endað sem úrgangur, er endurunninn af Flöff í nýtt hráefni sem verður að áklæði á sérhannaðan bekk fyrir þjónustustöðina. Með þessu fær efnið nýtt hlutverk og einstaka sögu sem tengist uppruna þess.